Bessastaðasund 5.júlí

02 júl 2014 22:52 #1 by raggy68
Laugardaginn 5.júlí verður Sjósunds og sjóbaðsfélag Reykjavíkur með Bessastaðasund. Tvær vegalengdir eru í boði 4,5 km og 2,5 km. Sundið hefst kl 11:45 við Lambhústjörn og verður synt inn í Nauthólsvík. Sjósundsfélagið auglýsir eftir áhugasömum kayakræðurum sem langar að fara þessa leið með sundmönnum. Nánari upplýsingar um sundið og mynd af sundleið er inn á www.sjosund.is. Kveðja Raggý formaður SJÓR

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum