Af Kayak, Kollafirði og skaki

25 apr 2020 01:26 #1 by sveinnelmar
Skaust síðasta vetrarkvöld í veiði við Flatus Lifir á mínum gamla Prijon Seayak. Það er ekki hægt að kvarta þegar maður fer eitt kvöld í góðu veðri og dregur upp 40kg af þorski og sá stærsti var 15kg og 107cm. Fyllti ruslapoka milli fóta og afturlestina. Kom í land eins og loðnubátur með fullfermi. Þrif og aðgerð var ekki eins skemmtileg en þetta dugar okkur fjölskyldunni eitthvað fram á vetur.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum