Rhode Island

24 sep 2007 01:36 #1 by Orsi
Rhode Island was created by Orsi
Í byrjun sept. brá ég mér á bandarískt symposium í Rhode Island sem haldið var í samstarfi Maine Island Kayak Company og Nigels Dennis. Þarna var breska stórskotaliðið mætt með Nigel í fararbroddi og ekemmst er frá því að segja að mikið var buslað á daginn og var séð til þess að enginn ræðari kæmi þurr í kvöldmat. Allskyns námskeið voru í boði, flest á sviði bátameðhöndlunar í úfnum sjó fyrir lengra komna, auk 4 og 5 star training. Þarna voru 85 manns samankomin frá þremur löndum, 70 Bandaríkjamenn, síðan Bretarnir og að lokum einn Íslendingur. Þetta verður víst haldið aftur að ári. Mæli með eindregið með þessu.

Myndir til glöggvunar á stemmningu og staðháttum, teknar af lókal ljósmyndara:

www.maineislandkayak.com/RWS/album/index.html

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum