Sjókayakferð á mánudagskvöld 2.júní

02 jún 2008 20:05 #1 by Anna Lára
Það er flott... var nú farin að efast um að ég væri hæf á námskeið... en eru einhverjir að fara að róa þá á fimmtudaginn? eða eru allir að fara austur?

kv Anna Lára

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

01 jún 2008 22:35 #2 by SAS
Þú hefur rúma viku til að prófa sjókayakinn, því námskeiðið með Nigel er ekki fyrr en í næstu viku, þ.e. þriðjudaginn 10. júní.

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

01 jún 2008 21:30 #3 by Anna Lára
Hæ hæ

Er einhver möguleiki á að draga einhvern í smá sjóróður á morgun eftir kl 21 ?

Ég var að spá í að skella mér á námskeið hjá Nigel á þriðjudaginn en hef ekki enn róið sjóbát og finnst sniðugt að byrja á því þó það væri ekki nema rétt að máta og sjá hvernig hann virkar.

kær kveðja
Anna Lára

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum