Fyrsta skóflustunga að nýju húsnæði

03 jún 2008 03:05 #1 by Gummi
Föstudaginn 6. Júní klukkan 15:00 verður tekin fyrsta skóflustunga að nýju húsnæði Siglingafélagsins Ýmis við Fossvoginn í Kópavogi. Við hvetjum alla siglingamenn að vera viðstaddir þennan stórmerkilega atburð í sögu siglingaíþróttarinnar á Íslandi. B)
Eina nýja aðstaðan sem byggð hefur verið hingað til er í Hafnarfirði og er full ástæða til að öfunda þá sem í því félagi eru. Nú er loksins komið að því eftir tugi ára að koma siglingaíþróttinni í Kópavogi fyrir í almennilegri aðstöðu. Vonandi kemur einnig að því fljótlega í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði og öllum þeim stöðum þar sem þessi íþrótt er stunduð.

Við hvetjum alla enn einu sinni að fjölmenna í Fossvoginn á föstudaginn kl. 15. Sérstaklega væri gaman að ef einhverjir sæju sér fært að koma siglandi.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum