Opið hús með Nigel Foster

10 jún 2008 16:05 #1 by Sportbúðin
Þau Nigel Foster og Krisin Nelson ásamt myndarlegum hópi nemenda ýttu úr vör í blíðskaparveðri frá Geldinganesi laust upp úr klukkan 10 í morgun.

Uppselt var á námskeiðið enda er hér um stórviðburð að ræða. Hugmyndin að þessu námskeiði kom frá Point 65 mönnum í Svíþjóð í september á síðasta ári þegar við hittum Nigel fyrst. Hugmyndinni var tekið fagnandi og nú er loks komið að stóra deginum.

Þau Nigel og Kristin verða með opið hús í Sportbúðinni Krókhálsi kl 20:30 í kvöld.
Nigel ætlar að segja frá ferðum sínum og kynna nýja Whisky 16 bátinn frá Point 65 í Svíþjóð en sem kunnugt er hannaði Nigel þennan bát sem nú þegar hefur fengið lof frá íslenskum ræðurum.

Léttar veitingar í boði Sportbúðarinnar verða á boðstólum og allir velkomnir að sjálfsögðu.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum