Egill Rauði að ári

10 jún 2008 19:12 #1 by Steini Ckayak
Sælir félagar

Við hér fyrir Austan þökkum kærlega fyrir okkur og gaman að sjá hve allt sem boðið var uppá á Agli var vel nýtt og allir samhentir í að gera helgina að góðri upplifun.

Um leið getum við uppljóstrað því að vinna við næsta Egil er hafin.
Dagsetningarnar eru 29. til 31 Maí sem er Hvítasunnuhelgin 2009.
Gestir okkar að ári verða Þau Shawna Franklin og Leon Sommé sem eru íslendingum að góðu kunn eftri Hringferð þeirra hér á landi árið 2003 þar sem þau unnu hug og hjörtu allra sem þau hittu á leið sinni hringinn.

Bestu þakkir og sjáumst á sjónum í sumar ( og ánum )
Kv Steini Ckayak

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum