Félagsróður 04.10.2008

04 okt 2008 18:18 #1 by GUMMIB
Félagsróður 04.10.2008

Keilir, Trölla og Grænadyngja, Heiðin há, Vífilsfell, Úlfarsfell, Skálafell, Esjan, Skarðsheiðin og Akrafjall
voru öll á sínum stað. Átta manns lögðu upp frá eiðinu vestanverðu og tekinn rangsælis Viðeyjarhringur.

Haustveður eins og þau gerast fallegust, snjóföl, bjartur himinn og smá svalur andvari.

Smá leikfimisæfingar í lokin.

Klikkar aldrei að mæta í róður.

Guðmundur

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum