Róður : Hfj-Álftanes- Hfj í kvöld

21 okt 2008 17:38 #1 by SAS
Við Hörður ætlum að róa frá Herjólfsgötunni í Hafnarfirði og taka stefnuna á Álftanesið, hugsanlega taka kaffipásu hjá Kayakklúbbnum Sviði, og róa svo sömu leið til baka. Er samtals 8-10 km róður.

Ætlum að mæta um 17:30. Ca 500 metrar frá Sundhöll Hafnarfjarðar á Herjólfsgötunni er bílastæði, er staðsett þar sem Herjólfsgatan beygir til norðurs og frá sjónum.

Allir velkomnir. Þetta er kvöldróður, og því eru blikkandi ljós og vasaljós nauðsynleg.

kveðja
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum