Félagsróður 13. des.

14 des 2008 01:21 #1 by Steini
Replied by Steini on topic Re:Félagsróður 13. des.
Stofnaður hefur verið hópur á \"Facebook\" - Félagsróður Kayakklúbbsins, þar er hægt að setja inn myndir og ferðasögur ásamt orðsendingum.
Slóðin er;
www.facebook.com/group.php?gid=52728023984&ref=mf

Til að geta tekið fullan þátt þarf að skrá sig inn sem er mjög einfalt.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

14 des 2008 01:20 #2 by ***SAS***
set hér fyrir neðan slóð á myndir sem voru teknar í félagsróðrinum.
www.flickr.com/photos/stefanalfred/sets/72157611136582145/
kv
Stefán Alfreð

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

13 des 2008 23:32 #3 by Gíslihf
Tíu félagar mættu á Geldinganesinu í morgun. Undirritaður var umsjónarmaður félagsróðurs í þetta sinn og minnt á öryggisstefnuna í upphafi og fór fram á að allir kæmu lifandi til baka. Öllu gamni fylgir nokkur alvara, enda var ég búinn að að lesa um \"kuldasjokk\" kvöldið áður, sem getur valdið dauða við vissar aðstæður. Mikilvægast til að slíkt komi ekki fyrir skilst mér að sé að vera vel varinn til höfuðsins. Nokkuð frost var og kaldi í byrjun og fullt tungl yfir Akranesi merlaði á sjónum. Í Veltuvík skiptist hópurinn og þrír fórum áfram umhverfis Geldinganes en við sjö héldum áfram umhverfis Þerney. Kaffi var drukkið í víkinni vestan í Þerney, reyndar hafði Maggi rænt kaffi Inga en honum var bjargað um sopa af ýmsum. Síðan lokið við hringinn umhverfis Geldinganes.

Nú var sólin tekin að skína á hvíta Esjuna og komið logn og sléttur sjór en ekki var mikið tekið af myndum þrátt fyrir óvenju heillandi myndefni.

Meðan tilfinningin var að koma aftur í dofna fingur var nokkuð rætt um það hve gott væri að hafa gufubað í gámnum.

Þeir sem réru voru: Gísli, Gunnar, Hörður, Ingi, Lárus, Magnús, Sigurjón, Smári, Stefán og Sveinn Axel.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum