Æfingaróður í Kópavoginum

06 mar 2009 05:54 #1 by eymi
Það var svo gott veður seinnipartinn að ég stóðst ekki mátið... skellti mér með bátinn í höfnina í Kópavogi, enda bý ég rétt þar hjá, og réri inn Kópavoginn, út aftur og yfir í bryggjuhverfið í Garðabæ og svo til baka. Í Kópavogshöfninni tók ég tvær veltur og nokkrar áraæfingar. Sjórinn var nú ekki eins hreinn og fínn þar og við Geldinganesið.. en OK samt.
Þetta var hin fínasta tilbreyting :silly:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum