Áminng vegna ólæstra gáma

19 ágú 2009 18:53 #1 by gsk
Sælir félagar,

Var að róa í gær, ásamt fleirum og var með þeim síðust að yfirgefa svæðið.

Sá þá að fyrsti gámur á vestur hliðinni var ólæstur og ekki nóg með það, ekki var búið að loka honum heldur.

Nú er það svo að þeir sem geyma bátana sína þarna hafa lykla að þeim, aðrir ekki.

Sem betur fór þá var Eymi ennþá á staðnum og hafi lykil sem passaði að þessum gám líka. Hann reddaði þessu í þetta sinn.

Bendi góðfúslega félögum mínum í klúbbnum að læsa gámunum eftir notkun.

kv.,
Gísli Karlsson

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum