Langar þig til að starfa í Hjálparsveit ?

29 ágú 2009 23:13 #1 by Gummi
Kynningarfundur um starfssemi og nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta í Reykjavík verður haldinn í húsnæði Hjálparsveitarinnar að Malarhöfða 6 þriðjudagskvöldið 1. september og hefst kl. 20.00 Við leitum að fólki:

* Sem hefur reynslu og eða áhuga á ferðamennsku.
* Sem hefur áhuga á leit og björgun og almennt að koma náunga sínum til aðstoðar.
* Sem er vel fært um að starfa í hóp en hefur einnig frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt.

Ég mæli með þessum félagskap fyrir alla ekta unnendur útivistar og ber þess að geta að við erum þarna starafndi nokkrir öflugir kayakmenn og konur og höfum sinnt fjöruleit á bátum okkar amk einu sinni á ári nokkur undanfarin ár.

Koma svo á fundinn
Gummi J.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum