Félaxróður V.XII

05 des 2009 20:47 #1 by Ingi
Félaxróður V.XII was created by Ingi
Fimm mættu í morgun. 3 reru Viðeyjarhring í ljúfu lensi þar sem hægt var að ná töluverðum hraða ef maður hékk á öldutopp í nokkrar mínútur. Kjöraðstæður fyrir betri báta en frekar slakar fyrir hina. Hlýtt og fínt veður. Kaffihlé í sólskálanum, sem við höfum alveg útaf fyrir okkur nú í skammdeginu. Veltuæfingar við dimmuborgir.
Fáir á ferli af vængjuðum og fiðruðum.

Þeir sem mættu voru Maggi, Gunnar Ingi, Rúnar, Sveinn Axel og Ingi. Þrír af þessum reru og hverjir haldiði að það hafi verið?

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum