Fyrsti félagsróður 2010

09 jan 2010 21:31 #1 by SAS
Replied by SAS on topic Félagsróður 9. janúar
Við Lárus vorum aðeins tveir sem rérum á stað í morgun, en Guðmundur Breiðdal hitti okkur í kaffi við Grillskálann. Fórum Viðeyjarhring réttsælis í 12 m/s og fínu pusi. Töluverð ölduhæð 2-3 m, var norðan megin í Viðey, þegar straumur og vindur mættust.

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 jan 2010 00:28 #2 by SAS
Í bjartri tunglbirtunni, logni og 9 stiga frosti í morgun lögðu 5 bátar á sjó, þau Hildur,Kristján, Lárus, Þórsteinn og undirritaður. Rérum út í Lundey og hringuðum, síðan tók við Viðeyjarkrækju, þar sem við fengum okkur kaffi. Lentum í smá ískrapa milli Viðeyjar og Geldinganesins.

Myndir á picasaweb.google.com/sjokayak/20100102Felagsrodur#


kv
Sveinn Axel<br><br>Post edited by: SAS, at: 2010/01/02 16:31

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum