róður þriðjudag 19 jan

20 jan 2010 20:55 #1 by Larus
Replied by Larus on topic Re:róður þriðjudag 19 jan
já mér fannst þetta nú bara skemmtilegt bæði undan og á móti roki og öldu, öll trixin i bókinni virðast vera að virka úr því Eymi hélt að ég hefði ekkert fyrir róðrinum......... :--) , ........en ég hefði sko gjarna viljað stinga kallinn af en það var ekki við það komandi, takk fyrir túrinn kv lg

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

20 jan 2010 06:56 #2 by eymi
Replied by eymi on topic Re:róður þriðjudag 19 jan
Hörku púl og gaman, en síðasti spölurinn, frá Pólskubryggjunni og heim í aðstöðu, var virkilega erfiður. Hef ekki áður lent í öðrum eins mótvindi. Tók á öllu sem ég átti, en samt var Lárus mér samsíða mest allan tímann og virtist ekkert hafa fyrir þessu. Það var samt eingöngu þrjóskan og keppnisskapið sem kom mér áfram síðustu 2 - 300 metrana :huh: ... en meðan ég held í við Lárus er ég sko þokkalega sáttur ;)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

20 jan 2010 06:39 #3 by Ingi
Replied by Ingi on topic Re:róður þriðjudag 19 jan
Þegar við vorum komnir að Þerney hélt ég að Orsi ætlaði til Grænlands eða að hann gæti ekki sveigt til suðurs þar sem vindurinn var af ASA og nokkuð hvass. Stundum sást hann og stundum ekki og ég var farinn að sjá eftir að hafa ekki tekið línuna sem hann seldi mér með. Við hinir höfðum vaðið fyrir neðan okkur og skriðum meðfram Geldinganesinu. En Orsi var bara í stuði og vildi komast í meira hopp. Eymi stakk svo alla af á heimstíminu og þó að Lárus andaði ofaní hálsmálið hjá honum gaf hann ekki eftir. Við Sveinn Axel nutum róðursins og vorum ekki að sperra okkur í þetta sinn.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

19 jan 2010 17:32 #4 by eymi
Replied by eymi on topic Re:róður þriðjudag 19 jan
Ingi, verð fyrir utan hjá þér um 15:40 B)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

19 jan 2010 02:10 #5 by Ingi
Replied by Ingi on topic Re:róður þriðjudag 19 jan
Ég kem. Eymi sækir mig,var það ekki díllinn Eymi?

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

18 jan 2010 23:03 #6 by Larus
æfingarróður frá höfuðstöðunum
leggum af stað 16.00
kv lg<br><br>Post edited by: Larus, at: 2010/01/18 15:04

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum