félagsróður 20.02

21 feb 2010 00:41 #1 by Larus
félagsróður 20.02 was created by Larus
Ellefu ræðarar mættu i morgun og réru Viðeyjarhring með stoppi i sólstofunni góðu. Þægilegt lens var á vesturferðinni norður fyrir eyna en aðeins mótvindur á leiðinni heim.Menn tóku sinar hefðbundnu æfingar á leiðinni ss veltur, sköll, stuðningsæfingar og bakk eins og hver hafði lyst og getu til. Þegar heim var komið beið okkar ilmandi bakkelsi frá Ara sem komst ekki með okkur i róðurinn þar sem gallinn hafði eitthvað rýrnað síðan síðast. Þessir réru: Maggi, Hörður, Svenni, Þóra, Þórsteinn, Andri, Össur, Þorbergur,Sigurjón, Eymi og Lárus.

takk fyrir túrinn og bakkelsið.
kv-lg.

þar sannaðist hið fornkveðna að sjaldan er góð vísa of oft kveðinn :--)<br><br>Post edited by: Larus, at: 2010/02/20 16:45

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum