Sumardagskrá klúbbsins

07 mar 2010 19:11 #1 by Gummi
Ferða og keppnis dagskrá klúbbsins er að fæðast þessa dagana og er ferðanefnd búin að hittast einu sinni og fara yfir stöðuna. Ég ætla ekki að tíunda neitt um sjóbátaferðir sumarsins en ég ætla að nefna það að í nefndina vantar sárlega virka straumvatnsræðara. Ég var sá eini úr staumvatnsgeiranum sem mætti. Nú vantar einhvern eða einhverja til að taka að sér að stjórna einni straumvatnsferð í sumar, því eins og staðan er núna þá verð ég skráður fyrir öllum ferðum sumarsins. Ég get svo sem alveg tekið það að mér en mig vantar samt hjálp. Þið þurfið ekki að borga mér krónu fyrir að fá að róa með mér, aðeins að segjast ætla að mæta og standa við það. Er ekki einhver straumvatnsræðari þarna úti í stuði til að starfa með mér fyrir klúbbinn ?

Kv. Gummi J.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum