Fréttabréfið komið

18 maí 2010 23:53 #1 by palli
Replied by palli on topic Re:Fréttabréfið komið
Jamm - skemmtileg mynd hjá Gauta og fyrirsátinn ekki af verri endanum, Andri í góðri aksjón. Við drifum okkur svo hressilega að koma út þessu fréttabréfi að það fórst því miður fyrir að geta staðreynda um forsíðuna. Ég passaði mig samt auðvitað á að allt kæmi fram um formanninn, enda bæði framhleypinn og athyglissjúkur eins og alþjóð veit.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

18 maí 2010 22:57 #2 by Andri
Replied by Andri on topic Re:Fréttabréfið komið
Það passar, þetta er ég á forsíðunni. Gauti bróðir tók þessa í Elliðaánum þegar ég var að æfa mig fyrir rodeóið, fínasta mynd hjá honum.

Engin stöng á bakkanum, mér sýnist þetta bara vera einhver gróður.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

18 maí 2010 20:50 #3 by Gíslihf
Það var fínt að fá fréttabréfið þótt innihaldið sé ekki frumlegt og hefði getað verið meira, þá er þetta eitthvað sem allir skráðir félagar fá í hendur um dagskrá sumarsins.

Það var auðvitað viðeigandi að sjá mynd af formanninum í fullum herklæðum undir Látrabjargi, en ég er meira að spá í hvort þetta sé hann Andri á forsíðunni. Það er mikil hreyfing í straumvatninu og engu líkara en að það glitti í laxastöng á árbakkanum.

Kv. GHF.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum