Félagsróður 8 júlí

08 júl 2010 23:16 #1 by SAS
Félagsróður 8 júlí was created by SAS
Þetta var líklega sögulegur róður hvað varðar félagsróðra Kayakklúbbsins, því í kvöld voru stelpurnar í meirihluta. Við vorum 5 sem rérum Viðeyjarhring með kaffistoppi í Grillskálanum. Steinunn mætti í sinn fyrsta sjóróður, aðrir sem tóku þátt í félagsróðrinum voru þau Þóra, Klara, Össi og undirritaður.
kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum