Félagsróður 19.ágúst

20 ágú 2010 10:46 #1 by Þóra
5 bátar á sjó þennan félagsróðurinn. Fínasta veður. Róið var út að Geldinganestá, þverað svo yfir að Áburðaverksmiðjunni og því næst kíkt undir brúna inn í Grafarvoginn. Enginn stjörnuræðari var á sjó en einn ræðari, hún Sigrún, að fara í sinn fyrsta félagsróður og stóð sig með prýði. Tókum auðvitað veltur og félagabjarganir áður en komið var í land enda verður sjórinn vart betri en nú til slíkrar æfinga.

Þeir sem réru voru
Þóra
Klara
Össur
Sigrún
Jónas

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum