Tvísýn veðurspá

03 sep 2010 13:05 #1 by Rúnar
Tvísýn veðurspá was created by Rúnar
Veðurspá er tvísýn á Kjalarnesinu og gæti frestað Hvammsvíkurmaraþoni.  Fylgst verður með þróun næstu klukkutímana og lokaákvörðun birt á korkinum í síðasta lagi kl. 8 í fyrramálið.  Ef af frestun verður keppt kl. 10 á sunnudagsmorgun.

Búið er að kaupa heilt lamb í kjötsúpuna og ná í útdráttarverðlaun frá 66°N (áttu að vera í boði í Reykjavíkurbikar en þær gleymdust þá), kaupa gos og samlokur. Einnig fá keppendur neyðarblys. Leitun er að annarri keppni þar sem svo vel er hugsað um keppendur. Minnt er á að keppnisnefnd gleymdi alveg að auglýsa keppnisgjald og því er þátttaka ókeypis að þessu sinni.

Ródeóið verður haldið á sama stað og sama tíma og áður hefur verið auglýst. Keppendur þar fá líka samlokur og gos.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum