Skráning í klúbbinn

22 feb 2013 13:11 #1 by palli
Replied by palli on topic Re: Skráning í klúbbinn
Blessaður Árnmar og velkominn í klúbbinn.

Þú ert orðinn klúbbmeðlimur um leið og þú hefur lokið skráningu og ég átti bara eftir að svara þér varðandi geymsluplássið. Getur ekki verið að þú hafir skráð þig á þriðjudaginn var ?

Nýjum meðlimum bendi ég síðan alltaf á að lesa hina ágætu lesningu undir "Klúbburinn" - "Til nýliða". Og drífa sig svo í GG Sjósport og kaupa bókina hans Örlygs, Sjókajakar á Íslandi. Frábær lesning fyrir byrjendur og lengra komna.

Sendi þér póst seinna í dag varðandi geymsluplássið

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

22 feb 2013 12:25 #2 by iceboy
Sæl öll.

Nú er ég nýr hérna en langar að spyrja aðeins.

Hvað er það langt ferli að skrá sig í klúbbinn?

Ég skráði mig í klúbbinn á netinu eftir þeim leiðbeiningum sem þar voru og sótti líka um pláss í gámnum á Geldingarnesinu.

Ég hef svo ekki heyrt frá klúbbnum og er að spá hvort þetta sé langt ferli og þar af leiðandi hvort það sé langt þangað til ég geti átt von á því að fá svar?

kv Árnmar J Guðmundsson

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum