Ekki missa af þessu!

02 ágú 2007 01:10 #1 by Jói Kojak
Ekta kayaktrukkur til sölu. Musso ´98 - 2,9 Tdi - sjálfskiptur - dráttarkúla og fleira töff stöff(t.d. kraftmagnari). Síðasta árið er búið að skipta um glóðarkerti, handbremsubarka, efri spindla beggja megin, skiptimótor fyrir millikassa, báða hjöruliðskrossa á framskafti, hjólalegur og allt sem fylgir að framan beggja megin, drifloku hægra megin, bremsudiska að framan ásamt borðum. Dekkin eru 35\" míkroskorin og keypt undir hann í janúar sl. Trukknum fylgja toppbogar með sæti fyrir bát, allt frá Thule. Nýskoðaður án athugasemda.
Frábært tækifæri fyrir þá sem hingað til hafa verið :sick: af öfund til að eignast rétta bílinn í sportið!
Áhvílandi lán frá TM kr.400þús - 22 á mán - 50 út og yfirtaka og málið er dautt. Upplýsingar veittar síma 663-5578.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum