Til sölu tveir QajaQ sjóbátar

01 ágú 2008 20:05 #1 by Gummi
Replied by Gummi on topic Annar seldur
B) Jæja þá er Kitiwec báturinn seldur og Sardínan bíður spennt eftir að hitta nýjan eiganda þeas hann er ennþá til sölu :woohoo:

Við óskum nýjum eiganda Kitiwec bátsins til lukku með gripin og við vitum að hún verður ekki svikin af græjuni :kiss:

Gummi J.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

10 júl 2008 04:32 #2 by Gummi
Til sölu eru tveir prýðis sjóbátar

Sá fyrri er af gerðini \"QajaQ Island of Sardinia M\" og er með Rautt dekk og hvítan botn.
Þetta er skemmtilegur bátur með góðan hraða og ágætlega stöðugur, hann er útbúin með stýri og innbyggðri lensidælu.
Þessi bátur er alveg einstaklega skemmtilegur í allri meðhöndlun


Sá síðari er af gerðini \"QajaQ Kitiwec\" og er með blátt dekk og hvítan botn.
Bátur með útlit í sérflokki. Langur en jafnframt einstaklega lágsigldur einstaklega stöðugur og tekur nánast engan vind á sig, hann er útbúin með stýri.
Þetta er alveg frábær bátur fyrir meðalmann eða konu.

Báðir bátarnir eru mjög vel með farnir.

Verð sem er ásættanlegt fyrir þá er 185 þús staðgreitt fyrir Sardinuna og 175 þús staðgreitt fyrir Kitiwec.
Það þýðir lítið að prútta.

Þeir sem hafa áhuga geta sent mér emil á gummij hjá hive.is
Eða hringt í síma 8244088 og spurt eftir Gumma

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum