Keppnisdagsskrá 2017 telur sex keppnir þetta árið eins og síðasta ár. Fimm af sex keppnum mun telja til stiga íslandsmeistara, mæti keppandi í allar keppnir munu fimm bestu telja. Stigagjöf verður eins og áður.
Flokkun báta verður eins og áður, ferðabátar og keppnisbátar, til ferðabáta teljast þeir sem hafa stuðulinn <= 11 (lengd / breidd) en keppnisbátar þeir sem hafa stuðulinn > 11.
Dagsskráin verður sem hér segir:
6. maí 2017 |
Reykjavíkurbikarinn |
Geldinganes |
Hefðbundið |
27. maí 2017 |
Spretturinn |
Óákveðið |
Sprettróður, vegalengd 500 - 1000 metrar. 4 - 5 keppendur í einu, allir á sams konar bátum Walley Club og klúbbárar. |
10. júní 2017 |
Hallarbikarinn |
Nauthólsvík |
Hefðbundið |
2. sept. 2017 |
Hálfmaraþon |
Nauthóll - Gnes |
Hefðbundið |
23. sept 2017 |
Bessastaðakeppnin |
Álftanes |
Hugsanlega ný leið róin, auglýst síðar. |
19. nóv. 2017 |
Veltur & áratækni |
Sundlaug |
Sett upp braut í sundlauginni, með ákveðnum þrautum.. Veltur snúningar og fl. Nánari útfærsla síðar. |