Veðurspá gærdagsins lofaði góðu fyrir okkur sem mættum að heiðra vetrarsólstöður sem eru síðar í dag skv. Wikipedia, kl 17:22.
Raunin var önnur eins og oft er á vetrum, en kl 10:00 var vindur NNA 11 m/s og hviður 16 m/s, en hiti öllu meiri en var spáð eða 3 gráður.
Settum út austan megin Geldinganes, rérum langleiðina að Gunnunesi. Síðan tók við lens vestur fyrir Geldinganes í 11 m/s og smá puð þegar stefnan var sett á höfuðstöðvarnar, þar sem við lentum um hádegi. Þeir sem réru auk undirritaðs voru Þóra, Klara, Perla, Siggi, Palli R og Örlygur.
Myndirnar sem ég tók voru flestar ónýtar, en 4 þeirra má sjá á slóðinni
https://picasaweb.google.com/sjokayak/20131221FelagsroUr
Gleðileg jól og takk fyrir frábæra stundir á sjó sem og landi
Sveinn Axel