Aðalfundur Kayakklúbbsins  verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar 2023 í húsnæði Siglingaklúbbsins Þyts Hafnarfirði (það er framkvæmdir í Íþróttamiðstöðinni Laugardal). Fundurinn hefst kl. 20:00.

 

Dagskrá aðalfundar:

 

  1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram.
  3. Skýrslur nefnda lagðar fram.
  4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og útskýrðir.
  5. Umræða um skýrslu stjórnar, nefnda og reikninga.
  6. Reikningar bornir upp til samþykktar.
  7. Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og bornar undir atkvæði.
  8. Önnur málefni sem borist hafa til stjórnar lögð fram og borin undir atkvæði.
  9. Kosning formanns og fjögurra meðstjórnenda sem skipta með sér verkum í samræmi við
    9. grein.
  10. Ákvörðun félagsgjalda.
  11. Önnur mál.
  12. Fundargerð.
  13. Fundarslit.

Kosning stjórnar og aðrar atkvæðagreiðslur

Kosningu á aðalfundi skal framkvæma með handauppréttingu en sé þess óskað sérstaklega, skal haldin leynileg atkvæðagreiðsla.

Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi og þá með 2/3 hlutum atkvæða. Í öðrum kosningum á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti.

Aðalfundur getur með 2/3 atkvæða viðstaddra, tekið fyrir mál utan dagskrár aðalfundar, þó ekki lagabreytingar.

 

Framboð til stjórnar og nefnda:

Félagsmenn sem hafa greitt félagsgjöld hafa rétt til að bjóða sig fram til stjórnar og nefnda á aðalfundi. 
Nánar má lesa um stjórnar- og nefndarfólk á heimasíðunni okkar.

 

Lagabreytingar og önnur málefni  :

Samkvæmt 6. grein laga félagsins þurfa tillögur að lagabreytingum tilkynnast stjórn Kayakklúbbsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund sem væri þá 9. febrúar 2023. Hægt er að senda tölvupóst á kayakklubbur@gmail.com

Stjórn auglýsir lagabreytingar, ef einhverjar eru, á heimasíðu klúbbsins.

F.h. stjórnar

Valgeir Elíasson

Formaður