Félagasróður 06.09.2014

07 sep 2014 10:18 - 07 sep 2014 10:36 #1 by Össur I
Replied by Össur I on topic Félagasróður 06.09.2014
Frekar fámennt en afskaplega góðmennt var fyrsta laugardagsróður vetrarins. Hægur vindur en dulítil undiralda. Róið var í Kollafjörð um Þerneyjarsund og tekið kaffi í Arnarhreiðrinu. Til baka var róið norður fyrir Þerney og vestur fyrir Geldingarnes. Ekki voru menn á eitt sáttir með áætlaða lengd róðurs en kortið góða sagði 13km og var það fært til bókar. Ræðar voru, Klara, Þóra, Páll R, Tóti Matt, Þorbergur, Egill, Einar Sveinn, Vigfús og undirritaður.
Ekkert bólaði á Örlygi og því lítið um kræsingar í kaffistoppi
Kv öi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

05 sep 2014 12:01 #2 by Össur I
Undirritaður er skráður róðararstjóri á morgun laugardag í fyrsta laugardagsróðri vetrarins.
Reikistefna tekin um róðrarleið á pallinum en hugmyndir hafa vaknað um að kíkja í Arnarhreiðrið í Kollafirði :)
Pottþétt að við tökum kaffi og með því svo Örlygur við stólum á Fastelavns kattekagemand eller kattekagekone handa öllum.
Sjáums á morgun.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum