Ef hlutirnir eru að fara í þessa átt á Geldinganesinu þá er kanski þörf á að endurskoða hvernig gámunum er læst.
Hér
er hægt að skoða nokkra öfluga lása til að læsa hirslum okkar fyrir óboðnum.
En er einhver markaður fyrir illa fengin hjartastuðtæki ?
Sunnudagskvöld fyrir viku kom ég þarna við, þá hafði verið brotinn upp lás, hitti Smára þar fyrir, hann var að koma úr róðri en ég að fara. Smári bauðst til að skreppa í Bauhaus og kaupa nýjan. Við Smári sáum ekki neitt sem vantaði.
Kannast einhver við að hafa fengið lánað hjartastuðtæki og sjúkrakassa klúbbsins?
Hékk á veggnum í kaffigáminum, en nú eru þar aðeins tómir veggir.
Þið sem réruð sl. laugardag, tókuð þið eftir því hvort þetta var á staðnum þá?