Góður félagsróður að baki. 9 manns á sjó og tókum við Engeyjarhring í ágætis aðstæðum. Þessir röru; Eymi, SAS, Egill, Indriði, Palli R, Gummi B, Þóra, Klara og Orsi.
Félagsróður á laugardag. Róið verður sunnan Viðeyjar og stysta leið útí Engey og kaffistopp þar. Vegalengd ca 10 km fram og til baka.
Veðurspá NV gola eða kaldi og þriggja stiga hiti. Flóð kl. 11.36. Allir að mæta.