Sælir félagar
Nú er kominn tími til að huga að ferðum sumarsins. Ferðanefnd klúbbsins ætlar að funda núna um miðjan janúar og byrja að skipuleggja. Sá siður hefur komist á að hver nefndarmeðlimur hefur skipulagt einn viðburð, dagsferð eða helgarferð, allt eftir vilja og áhuga. Nú þegar eru góðir félagar í nefndinni, en þó er pláss fyrir fleiri.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessu starfi félagsins þá endilega hafðu samband.
Bestu kveðjur
Hildur Einarsdóttir
formaður ferðanefndar
e-mail: hildure@flensborg.is
sími: 8991536