SÍL og ÍBR

26 jan 2015 10:34 #1 by Klara
SÍL og ÍBR was created by Klara
Kayakklúbburinn er aðili að SÍL (Siglingasamband Íslands, samband sjö siglingafélaga á Íslandi), ÍBR (Íþróttabandalag Reykjavíkur sem sér til dæmis um að úthluta tímum í sundlauginni, hefur styrkt okkur til að halda BCU námskeið og kaupa hjartastuðtæki) og ÍSÍ.

Vegna þessarar aðildar á klúbburinn rétt á ákveðnum fjölda fulltrúa á Siglingaþingi SÍL (21. febrúar) og Þingi ÍBR (20.-21. mars). Við höfum ekki alltaf náð að senda fulltrúa á þessi þing og því væri frábært ef einhverjir áhugasamir klúbbmeðlimir gæfu sig fram. Þá vantar líka duglegt fólk í stjórn SÍL ef einhver hefur áhuga.

Endilega sendið mér línu ef getið bætt við ykkur kayak verkefnum.

Klara (899-2627 eða kayakklubbur@gmail.com).
Eins stefni ég á að fá mætingarverðlaun fyrir janúar og því má líka ræða málin í félagsróðrum....

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum