Félagsróður 28.02.2015

28 feb 2015 13:42 #1 by GUMMIB
Replied by GUMMIB on topic Félagsróður 28.02.2015
Sæl hérna kemur skýrslan.

Ekkert varð úr veðrinu sem spáð var. Geldingarnesið virðist hafa verið í skjóli Esjunnar sem gerði það að verkum að nánast var logn og sólin komin vel á loft.

Ellefu bátar á sjó, róið inn í Grafarvog landtaka neðan við kirkjuna og síðan sama leið til baka. Ekkert merkilegt gerðist í þessum róðri.

Takk fyrir mig
GummiB

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 feb 2015 04:56 #2 by GUMMIB
Sæl

Undirritaður er róðrarstjóri á morgun.

Aðstæður samkvæmt spá:
Vindur 14 til 16 metrar og fjara 8:53 s.s aðfall hitastig 0 til 1 gráða C.

Góður klæðnaður nauðsynlegur.

Hvert á að fara og hvað á að gera verður ákveðið á pallinum m.t.t hóps og aðstæðna.

Kveðja
GummiB.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum