Ég held að það sé akkurat málið Sævar. Kayak fólk sem hefur farið í lengri leiðangra hefur haft af þessu orð að þegar þú ert komin í rútínuna þá sé mjög erfitt að hætta. Ég kannast aðeins við þetta sjálfur eftir hringróðurinn hjá mér. Ég var alls ekki tilbúin að taka mér pásu vildi helst bara fara strax í róður og það helst langan. En sat fyrirlesur hjá Jeff Allen í Anglesey fyrir nokkrum árum þar sem hann talaði einmitt um svipað mál. Þar lísti hann að hann hafi verið orðinn hálf ruglaður í miðjjum leiðangri og þegar honum lauk ákvað hann að fara í annan minn þar sem hann gat ekki hugsað sér að hætta alveg strax.
En ég Freyja er atvinnumaður í þessu sporti og til að vera á toppnum þarf maður sífelt að vera gera stóra hluti og alltaf að minna á sig. Held líka að henni finnist mjög gaman að vera í sviðsljósinu, eða svo hef ég heyrt.
Kv Guðni