Félagsróður 4 juní

04 jún 2015 22:33 #1 by Larus
Replied by Larus on topic Félagsróður 4 juní
Um 15 ræðarar mættu, vanir og minna vanir ásamt einum nýliða, ýmsar æfingar voru framkvæmdar svona á meðan athyglin og einbeitingin var til staðar, stór hluti hópsins renndi svo Geldinganes hring i lokin.
Hin besta skemmtun fannst mér........... og ánægjulegt að ekki sá vín á nokkrum manni.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 jún 2015 21:31 #2 by Larus
Félagsróður 4 juní was created by Larus
Ég verð róðrarstjóri i næsta fimmtudags róðri, veðrið verður örugglega gott og það verður hásjávað alltaf gaman þegar nóg er af sjó að sulla í.
Ég var að láta mér detta í hug að allir væru mjög spenntir fyrir ýmiskonar róðrar ára og tækniæfingum..........einmitt allir til i það. )

Við förum ekki langt frá höfuðstöðvunum, fólk ætti að vera búið til að detta í sjóinn eða .....það dettur bara ekki í sjóinn.

Minni á að sittintopparar og nýliðar eru ávalt velkomnir í klúbbferðir, Einar Sveinn og Klara formaður eiga afmæli 3 júní og að neysla áfengis er stranglega bönnuð í þessum róðri.

lg

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum