Félagsróður 18. júní

17 jún 2015 09:48 #1 by Klara
Það er tilvalið að mæta í félagsróður á morgun 18. júní og hita þannig upp fyrir miðsumarsróður, Jónsmessuróður og aðrar skemmtilegar uppkomur sem eru framundan. Þeir ræðarar sem ekki hafa róið lengi eru hvattir til að bursta rykið af bátunum sínum og mæta á sjó.

Undirrrituð mun taka frí frá tuðrusparki og leiða róðurinn. Miðað við veðurspá verður hæglætisveður og því vonumst við til þess að sjá sem flesta. Róðrarleið verður ákveðin á pallinum en ef aðstæður leyfa verður hugsanlega róinn Þerneyjarhringur eða eitthvað slíkt.

Sjáumst á morgun.
Klara.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum