Pétur Þór er að leita af bátnum sínum sem var geymdur í Laugardalslauginni
"Kayak horfinn úr lauginni - Vinsamlegast aðstoðið! Kæra kayakfólk Við hjónin höfum undanfarin 10 ár eða svo geymt 2 báta í Laugardalslauginni, sem klúbburinn hefur fengið að nota í starfsemi sinni. Þegar við ætluðum að sækja gripina um daginn kom í ljós að annar er þar ekki lengur og nú þurfum við hjálp ykkar við að finna hann. Þetta er gulur Pyranha Blade eins og þessi
i997.photobucket.com/albums/af100/butler.../Bladecompressed.jpg (nema gulur auðvitað). Báturinn er stimplaður með "K"-i klúbbsins og hefur því væntanlega verið lánaður eitthvert út í góðri trú. Ef þú ert með bátinn eða veist hvar hann er niðurkominn þá vinsamlegast heyrðu í mér í síma 6607040 eða sendu mér skilaboð. Með kærri þökk, Pétur"