Félagsróðrar hafa nú færst yfir á laugardaga. Mæting kl. 9:30 og sjósett kl. 10:00
Veðurhorfur á laugardaginn eru ágætar, vindur á bilinu 4-6m/s, lofthiti um 10°C og sjávarhiti um 10°C.
Félagsmenn eru hvattir til þess að hefja vetrardagskrá af krafti og fjölmenna í róður. Róðrarleið verður ákveðin á pallinum.
Ræðarar skulu vænta nestisstopps.