Félagsróður 19.sept 2015

19 sep 2015 13:46 #1 by Gunni
Replied by Gunni on topic Félagsróður 19.sept 2015
Fámennt í dag. Eymi, Ragnar? og GIG. Við rérum upp að golfvelli á móti rokinu 15m/s SA og sló í 20 í hviðum. Brimreið til baka og þeir sem nenntu fóru annan hring eins og krakkar í vatnsrennibraut. Ragnar hefur ekki farið oft í róður og var þarna að stíga stórt skref út fyrir þægindaramma og gerði það með sóma.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

18 sep 2015 10:50 #2 by gsk
Undirritaður er róðratjóri á morgun laugardag.

Spáin er hlýtt í veðri og 11 til 14 m/s á róðrartímanum.

Hef ekki tök á að mæta sjálfur og stóla á að einhver taki að sér stjórnina. :(

kveðja,
Gísli Karlsson

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum