Félagsróður 7. nóvember

08 nóv 2015 08:54 - 09 nóv 2015 09:51 #1 by Páll R
Replied by Páll R on topic Félagsróður 7. nóvember
Nokkrir góðkunningjar kayakklúbbsins, 12 að tölu, mættu á Geldinganeseiðið síðastliðinn laugardagsmorgun.
Veður var þokkalegt, frekar hægur vindur og rigning með köflum. Róið var í Grafarvoginn og tilbaka, þó með ágætu kaffistoppi innan við Gullinbrú. Þetta var að öðru leiti tíðinda- og átakalítill róður, en vel tímans virði.
Þeir sem réru voru Indriði, Egill, Gunnar Ingi, Þorbergur, Helga, Sveinn Axel, Siggi Sig., Þórólfur, Þóra , Klara, Þórólfur og Hörður ásamt undirritaðum.
Með kveðju Páll R

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

06 nóv 2015 08:58 - 09 nóv 2015 09:51 #2 by Páll R
Félagsróður verður að vanda á laugardagsmorgunn 7. nóv. Mæting kl.09:30.
Búast má við SV-strekkingi, 8-12 m/s og um 5 gráðu hita. Fjara um kl 10.
Ég er semsagt settur róðrarstjóri og hvert förinni verður heitið ræðst af efnum og aðstæðum.
Upplagt að hafa með sér kaffi.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum