Í félagsróður gærkveldsins mættu seytján ræðarar. Rérum við vestur frá Eiðinu og síðan norður í Lundey í sunnangolu og smáöldu. Kaffibolli á fallegu fjörugrjóti og áfram róið að Þerney. Ágætishópur, fáeinir nýliðar í bland við hina. Nokkrar björgunaræfingar teknar á heimleiðinni, þar af tvær ekta hvolfanir. Þetta mun hafa verið 22. félagsróður þessa árs og gaf um 12-14 km róður.<br><br>Post edited by: Orsi, at: 2007/06/15 10:45