Félagsróður 14. nóvember

14 nóv 2015 13:51 #1 by Klara
Replied by Klara on topic Félagsróður 14. nóvember
Það voru 11 ræðarar sem lögðu upp frá Geldinganesi undir öruggri róðrarstjórn Þóru. Róið var fyrir Geldinganes og Lundey og þaðan yfir í Þerney þar sem tekið var stutt kaffistopp. Veður var með allra besta móti, logn, sól og sléttur sjór. Nokkrir töldu sig hafa séð hnísu á ferð, en aðrir ekki. Milli Lundaeyjar og Þerneyjar bættist einn ræðari í hópinn. Takk fyrir skemmtilegan róður.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

14 nóv 2015 08:45 - 14 nóv 2015 08:46 #2 by Klara
Skipaður róðrarstjóri forfallaðast í dag.

Annaðhvort Klara eða Þóra munu hlaupa í skarðið, eftir því hvor fær meiri stuðning á pallinum. Við hvetjum alla til að mæta, veðurspáin er frábær og ef einhvern tímann er ástæða til að fara á sjó í góðra vina hóp þá er það núna.

Sjáumst vonandi sem flest á eftir.
Klara og Þóra

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum