Fjórtán manns mætt í stórkostlegu vetrarveðri, smá bras að ná bátum úr gámum þar sem lásar og handföng voru frosin og skaflar fyrir framan hurðir.
Lagt var upp frá eyðinu austanmegin síðan inn Þerneyjarsund norður fyrir Þerney og Geldinganes og endað vestan megin á eyðinu. Sáum hval norðan
við Þerney og rerum gegnum ísskæni norðan megin við Geldinganesið.
Næsti félagsróður er skráður á mig. Það verður kalt á laugardaginn en stillt veður. Ákvarðanir verða teknar ískalt á pallinum,
kaffistopp? Veit ekki, Langur róður? Líklega 1-1.5 klst. Annars kemur þetta allt í ljós.