Félagsróður 05.des.2015

06 des 2015 12:40 #1 by SAS
Replied by SAS on topic Félagsróður 05.des.2015
Síðbúinn félagsróður fór fram í morgun við sólarupprás og fuglasöng í 7 stiga frosti og logni. Frábær vetrarróður. Þau sem mættu voru SAS, Helga, Egill og Þorbergur.

kv

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

05 des 2015 13:31 #2 by Helga
Replied by Helga on topic Félagsróður 05.des.2015
Ég mæti :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

05 des 2015 09:28 - 05 des 2015 09:55 #3 by SAS
Replied by SAS on topic Félagsróður 05.des.2015
Þar sem það er ófært í dag (35m/s) þá ætla ég að mæta á morgun sunnudag kl 09:30 í Geldinganessð og róa. Einhver með?

Kv úr logninu í Hafnarfirði

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 des 2015 19:29 #4 by Gunni
Replied by Gunni on topic Re:Félagsróður 05.des.2015
Ég er í pest og mæti ekki. Þið farið varlega sem mætið.

Sent from my Elephone_P3000S using Tapatalk

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 des 2015 16:19 #5 by Helga
Replied by Helga on topic Félagsróður 05.des.2015
Fúlt að missa af róðri um helgina út af veðri - er ekki bara hægt að færa félagsróðurinn yfir á sunnudagsmorgun?

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 des 2015 23:29 #6 by Orsi
Replied by Orsi on topic Félagsróður 05.des.2015
Jahérna. Mér þykir Úturinn ætla byrsta sig.

Hvað segir Hutcinsson um málið:
17-20 msek: Hvassviðri. Hættulegt. Vanir ræðarar komnir að mörkum getu sinnar. Félagabjörgun orðin nánast ómöguleg.

Þetta stefnir í lúffur og hjálm..
Og kaffistopp allsekki.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 des 2015 11:18 - 03 des 2015 11:18 #7 by Gunni
Við verðum á milli falla LW 08:30 (1,5m) og HW 14:10 (3,1m).
Veðurspáin er fullorðins og vel það. Vindur á róðrarsvæðinu NNA 16 til 24 m/sec, við frostmark og varla úrkoma.
Líklega förum við ekki í langferð, en kannski bleytum bátinn samt.




Það er ekkert annað að gera en fylgjast með verðurspánni fyrir laugardaginn
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum