Félagsróður 2. janúar

02 jan 2016 17:30 - 02 jan 2016 17:32 #1 by Ingi
Replied by Ingi on topic Félagsróður 2. janúar
Við urðum aðeins of sein í þennan formlega fyrsta róður Klúbbsins á árinu 2016, en fórum á okkar hraða í rólegheitum, fyrst í Elliðavog og svo þveruðum við Eiðisvík og svo heim. Við vorum aðeins á undan hersingunni sem fór lengri leiðinna. :)
kv.
Ingi og Eva

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

02 jan 2016 15:48 - 02 jan 2016 16:48 #2 by SAS
Replied by SAS on topic Félagsróður 2. janúar
Fyrsti félagsróður ársins og það róðrarstjóralaus, fínn túr í alla staði. Rérum Viðey-Lundeyjarhring, samtals 14 km hringur. Fengum nokkrar mjög viðráðanlegar surf öldur sunnan Viðeyjar sem við stöldruðum aðeins við, Vigfús átti fyrstu veltu ársins, amk hér á stór Rvk svæðinu. Þau sem mættu voru: Málfríður, Vigfús, Klara, Þóra, Gunnar Ingi, Hörður, Smári, Þorbergur, Helga og SAS. Siðan mættum við Inga og Evu sem tóku eitthvað styttri róður

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

01 jan 2016 21:58 - 01 jan 2016 22:01 #3 by Klara
Að sjálfsögðu verður félagsróður í fyrramálið, en ekki hvað!

Skipaður róðrarstjóri er forfallaður, en það verður fundinn staðgengill í fyrramálið á pallinum.
Veðurspá er nokkuð hagstæð og því tilvalið að mæta á sjó.

Sjáumst í fyrramálið.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum