Félagsróður 9.jan

10 jan 2016 19:43 #1 by Andri
Félagsróður 9.jan was created by Andri
Rórarstjóri og róðrarleið var ákveðin á pallinum en Guðni Páll leiddi 12 kayaka rangsælis Viðeyjarhring.
Róðurinn hefði líklega orðið tíðindalítill ef Gunnar Ingi hefði ekki mætt, enda skrapp hann í nokkrar "fjöruferðir". Í einni slíkri lenti hann á hvolfi innan um grjót í smá undiröldu við NV enda Viðeyjar. Þá sá ég langþráð tækifæri til að nota kast fítusin á throw-tow inu en losaði ranga carabínu og var enn að reyna að komast að því hvað séri upp og hvað niður þegar Guðni Páll kom Gunna til bjargar. Þorbergur birtist svo fljótlega, ekki til að hjálpa við björgun heldur til að safna myndefni fyrir heimasíðu klúbbsins. Björgun gekk greiðlega og tókst róðrarstjóranum að skemma fyrir myndasyrpu með hetjulegri kastlínubjörgun :)

Kv,
Andri

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum