Starfsmaður á vakt fullvissaði mig um að engin sundkeppni yrði fyrir okkur á morgun sunnudag.
Það er því ekkert annað en að drífa sig á kajakæfingu enda er ekki útlit fyrir skíðaveður.
Óvanir geta fengið tilsögn og góð ráð.
Aðrir geta hresst upp á tæknina fyrir sumarið.
Við höfum innilaugina frá fjögur (kl. 16) þannig að vel má mæta 10-15 mín fyrr í búningsklefa.