Bara grín
En grínlaust þá erum við Guðni Páll að fara fyrir hönd Kayakklúbbsins á morgun, (laugardag 19.3) til að vera með kynningu í (úti)sundlaug í Grindavík kl. 16-17.
Við verðum á 2 bílum og með nokkra báta, þannig að pláss er fyrir einn eða tvo sem vildu aðstoða við að sýna og hjálpa öðrum að prófa. Sérstaklega væri fínt að fá einhverja kajakkonu til að leggja áherslu á að þetta sport hentar báðum kynjum.
Við verðum í félagsróðri og förum svo flótlega eftir hádegið.