Ég fór einn Geldinganeshring í morgun til þess að vakna almennilega!
Þá birtist Fylkir Sævarsson í 'félagsheimili' okkar var gaman að hitta hann.
Undirbúningur fyrir róður með strönd Svíaríkis í júní gengur vel og ræddum við um náttstaði í skerjum og eyjum, þar sem mikið er af skordýrum og mýbiti. Markmið hans er að fara leiðina á styttri tíma en áður hefur verið gert.
Fylkir biður fyrir kveðju til ykkar og við óskum honum góðs gengis.